Infra red portable sauna Pod

89,990 kr 79,990 kr Sale
Tax included. Shipping calculated at checkout.

Preorder your Sauna Pod now to get the next available units. Next batch will be shipped:

Feb 20th
70% SOLD OUT
Mar 15th
Available
Apr 15th
Available
Sauna Specifications

📐 Tæknilýsingar – Sauna Pod

Hámarkshiti

Sauna Pod hitnar upp í allt að 85°C á 15–20 mínútum, með öflugum 1500 W rafmagnshitara og einföldu stýrikerfi þar sem hægt er að stilla bæði tíma og hitastig.

Notkun – inni / úti

Sauna Pod hentar bæði til notkunar inni og úti og er vatns- og UV-þolin. Þó er ekki mælt með að hafa klefann úti í miklum kulda, vindi, snjó, frosti hann er gerður fyrir plús 10 gráður Celsius minnst.

Til að ná hámarkshita (85°C) er þó mælt með notkun innandyra.

Stærð og þyngd
  • Innri hæð: 170 cm
  • Ytri hæð: 172 cm
  • Þvermál: 95 cm
  • Þyngd: 13 kg
  • Rými: Fyrir 1 einstakling
  • Hentar fyrir fólk allt að: 2,1 m á hæð
Rafmagnsupplýsingar
  • Afl: 1500 W
  • Inntaksspenna og tíðni: 120 V, 50–60 Hz
  • Tenging: EU-innstunga
Vottanir
  • Allir rafmagnshlutar eru UL-vottaðir
  • Rafeindabúnaður er CE- og ETL-vottaður
  • Bómullarefni er FSC-vottað
Ábyrgð

1 árs ábyrgð frá kaupdegi

Materials

Sauna Pod er úr 100% náttúrulegri svartri bómull, bæði að innan og utan, og kemur með þægilegu fellisæti. Hún hentar bæði til notkunar inni og úti, en mælt er með notkun innandyra til að ná hámarkshita.

Málmgrind

Grindin er úr ryðfríu stáli, tæringarþolnu og dufthúðuðu í kolsvörtum lit. Hún kemur með hlífum sem þekja málmstangirnar, þar sem málmgrindin getur annars orðið mjög heit við háan hita.

Saunahitari

Sauna Pod er búin öflugum og þéttum saunahitara sem hitar sánuna upp í allt að 85°C (185°F) og skapar aðstæður sem líkjast hefðbundinni Finnskri sánu.

Infrared ljós

Sauna Pod er með 100% vatnshelt infrared ljós á bilinu 660–890 nm.

Infrared ljósið dregur úr bólgum í djúpvefjum líkamans, eykur blóðflæði, lætur vöðva slaka á og styður hraðari endurheimt líkamans. Ljósbúnaðurinn vinnur djúpt í vefjum og stuðlar að líkamlegu jafnvægi og endurnýjun.

Ljósbúnaðurinn er hannaður til öruggrar notkunar við háan hita og raka og er 100% vatnshelt.

materials image
What's in the box?

Saunaklefi

Saunaklefinn er úr tveimur lögum af 100% náttúrulegri bómullardúk með aukalegu bómullarlagi fyrir hámarks einangrun og hitavörn. Hönnunin tryggir stöðugan hita og örugga notkun.

Infrared ljós

Ferningslaga infrared ljós á bilinu 660–890 nm. Ljósbúnaðurinn er 100% vatnsheltur og hitaþolinn, hannaður til notkunar við háan hita og raka og vinnur djúpt í vefjum líkamans.

Saunahitari

Öflugur saunahitari sem hitar gufuna upp í allt að 85°C (185°F) á 15–20 mínútum, með 1500 W afli og einföldu stýrikerfi.

Fellisæti

Þægilegt fellisæti, úr ryðfríu stáli og sterku Oxford-efni, hannað fyrir þægindi og stöðugleika við notkun í sánunni.

Shipping Info

Sendingar

Sendingarkostnaður er innifalinn í verði vörunnar.

Eina sem bætist við er grunngjald frá Dropp, sem er að jafnaði um 1.380 kr., eftir að varan hefur borist til landsins.

Við notum Dropp til afhendingar innanlands.

Hægt er að fylgjast með sendingarferlinu annaðhvort:

  • beint á vefsíðunni okkar, eða

  • með tracking-númeri sem fylgir pöntuninni

Skil & endurgreiðslur

Sauna Pod

Við bjóðum 30 daga skilafrest frá kaupdegi.

Til að vara teljist endurgreiðsluhæf þarf hún að:

  • vera í ónotuðu ástandi

  • vera óskemmd

  • vera í upprunalegum umbúðum með öllum fylgihlutum

Hægt er að taka vöruna úr umbúðum til að meta stærð og gæði, en ef varan hefur verið notuð er hún ekki endurgreiðsluhæf.

Endurgreiðsla

Eftir að varan hefur skilað sér til okkar og skil hafa verið samþykkt, fer endurgreiðsla fram innan 3 virkra daga.

  • Við berum ekki ábyrgð á sendingagjöldum vegna skila


Hafðu samband

Ef þú hefur spurningar varðandi sendingar, skil eða pöntun er þér velkomið að hafa samband við okkur í gegnum

📧info@divaprobeauty.com

Health benefits

Hjarta- og æðakerfi

Rannsókn frá 2018 (JAMA Internal Medicine) sýndi að regluleg sánunotkun (4–7 sinnum í viku við um 80°C) tengdist allt að 60% minni áhættu á hjarta- og æðasjúkdómum. Hitinn eykur blóðflæði, bætir æðastarfsemi og styður heilbrigðan blóðþrýsting.

Heat Shock Proteins & langlífi

Sánur örva myndun heat shock proteins (HSP) sem gegna lykilhlutverki í frumuviðgerð, endurnýjun og langlífi. Rannsóknir, m.a. í Experimental Gerontology, benda til þess að regluleg sánunotkun geti líkt eftir áhrifum hreyfingar á frumustigi og stuðlað að aukinni lífslengd.

Afeitrun & endurheimt

Sviti hjálpar líkamanum að losa eiturefni, þar á meðal þungmálma. Hitaáreiti getur einnig hækkað vaxtarhormón (GH) allt að 140%, sem styður vöðvaendurheimt og viðgerð (Growth Hormone & IGF Research).

Infrared heilun

Infrared Sauna Pod nýtir infrared ljós á bilinu 660–890 nm, sem vinnur djúpt í vefjum líkamans. Infrared ljósið dregur úr bólgum í djúpvefjum, eykur blóðflæði, flýtir fyrir endurheimt vöðva, lætur liði og vöðva slaka á og stuðlar að frumviðgerð og endurnýjun. Samspil djúpvirks hita og infrared ljóss veitir markviss vellíðunar- og heilunaráhrif.

Raunveruleg afköst – raunverulegur ávinningur

Infrared Portable Sauna Pod er fyrsta sinnar tegundar ferðasána með heitloftstækni sem hitar upp í allt að 85°C (185°F) og veitir sömu rannsökuðu heilsuáhrif og hefðbundin finnsk sauna.

Ólíkt lág­hitasánum skilar hún djúpum, hreinsandi hita fyrir raunverulegan, rannsóknamiðaðan ávinning.

Hönnuð úr 100% náttúrulegri bómull (án pólýesters), með infrared lýsingu og rúmgóðri hönnun fyrir notendur allt að 2,1 m og 160 kg, sameinar hún skandinavíska hönnun að Finnskri gufu fyrirmynd— á mun hagkvæmari hátt en hefðbundin viðarsána.

Sience behind the Sauna

Vísindin á bak við sánuna

Infrared Portable Sauna Pod er fyrsta sinnar tegundar ferðasána með heitloftstækni, sem hitar rýmið upp í allt að 85°C og veitir sömu rannsökuðu og viðurkenndu heilsuáhrif og hefðbundin finnsk sauna.

Ólíkt gufu- og lág­hitasánum sem ná takmörkuðum hita, skilar Sauna Pod djúpum, hreinsandi hita sem vinnur í vöðvum og djúpvefjum líkamans og veitir raunveruleg vellíðunar- og heilsuáhrif sem studd eru af rannsóknum á sánunotkun.

Sauna Pod er úr 100% náttúrulegri bómull og forðast þannig notkun á pólýester og öðrum gerviefnum sem finnast oft í ferðasánum. Með infrared ljósum, rúmgóðri hönnun sem hentar einstaklingum allt að 2,1 m á hæð og 160 kg, sameinar hún skandinavíska hönnun, finnska afkastagetu og nútímalega tækni — á mun hagkvæmari hátt en hefðbundin viðarsána.

Product information

RETURNS

Our policy lasts 15 days.
If 15 days have gone by since your purchase, unfortunately we can’t offer you a refund or exchange.

To be eligible for a return 
Your item must be
*unused and
*in the same condition that you received it in
*and a void sticker can not have been opened.
*It must also be in the original packaging.

Several types of goods are exempt from being returned. 
Additional non-returnable items:
* Gift cards
* Downloadable software products

To complete your return, we require a receipt or proof of purchase.

There are certain situations where only partial refunds are granted: (if applicable)

* Any item not in its original condition, is damaged or missing parts for reasons not due to our error.
* Any item that is returned more than 30 days after delivery

Refunds (if applicable)
Once your return is received and inspected, we will send you an email to notify you that we have received your returned item. We will also notify you of the approval or rejection of your refund.
If you are approved, then your refund will be processed, and a credit will automatically be applied to your credit card or original method of payment, within a certain amount of days.

Late or missing refunds (if applicable)
If you haven’t received a refund yet, first check your bank account again.
Then contact your credit card company, it may take some time before your refund is officially posted.
Next contact your bank. There is often some processing time before a refund is posted.
If you’ve done all of this and you still have not received your refund yet, please contact us at info@divaprobeaty.com 

Exchanges (if applicable)
We only replace items if they are defective or damaged. If you need to exchange it for the same item, send us an email at info@divaprobeaty.com and we will take it from there and work quickly and efficiently.  


Gifts
If the item was marked as a gift when purchased and shipped directly to you, you’ll receive a gift credit for the value of your return. Once the returned item is received, a gift certificate will be mailed to you.

How to return your product: 
Please email us at info@divaprobeaty.com with your order number & reason for your return.

To return your product just send us and email and we will assist you asap.


Make sure the package is marked with your name and order number.  
There are two options to return your order: 

You will be responsible for paying for your own shipping costs for returning your item. Shipping costs are non-refundable. If you receive a refund, the cost of return shipping will be deducted from your refund.

Depending on where you live, the time it may take for your exchanged product to reach you, may vary.

If you are shipping an item over $75, you should consider using a trackable shipping service or purchasing shipping insurance. We don’t guarantee that we will receive your returned item.

WHAT'S INCLUDED

Saunaklefi

Saunaklefi

Saunaklefinn er úr tveimur lögum af 100% náttúrulegri bómullardúk með aukalegu bómullareinangrunarlagi fyrir hámarks einangrun og stöðugan hita. Ryðfría stálgrindin kemur í hlutum og er einföld í samsetningu. Heildaruppsetning tekur 15–20 mínútur. Infrared ljós Saunaklefinn kemur með infrared ljósi á bilinu 660–890 nm, sem er 100% vatnshelt og hitaþolið. Infrared ljósið vinnur djúpt í vefjum líkamans, dregur úr bólgum, eykur blóðflæði, lætur vöðva slaka á og flýtir fyrir endurheimt. Ljósinu er komið fyrir efst í klefanum og veitir bæði heilandi áhrif og notalega stemningu. Saman brjótanlegur ferðastóll þægilegur og léttur og gott að sitja í honum.

Saunahitari

Saunahitari

Saunahitarinn hitar sánuna upp í allt að 85°C (185°F) á 15–20 mínútum með öflugum 1500 W hitara. Hann er með notendavænu stýrikerfi þar sem auðvelt er að stilla tíma og hitastig. Hitarinn er með tvílaga hitaveggi sem auka öryggi við notkun og tryggja stöðugan og áreiðanlegan hita.

Infrared ljós – virkni og ávinningur

Infrared ljós – virkni og ávinningur

Infrared ljósið í Sauna Pod notar 660–890 nm bylgjulengdir (rautt og nær-innrautt ljós) sem vinna bæði á yfirborði og djúpvefjum líkamans. Ljósmeðferðin örvar blóðflæði, dregur úr bólgum, styður við endurheimt vöðva og stuðlar að almennri vellíðan. Ljósakerfið er 100% vatnshelt og hitaþolið, hannað fyrir örugga notkun í heitu sánu-umhverfi og heldur stöðugri virkni við háan hita.

F.A.Q.

Algengar spurningar – Infrared Sauna Pod

Hvað gerir Infrared Sauna Pod öðruvísi en aðrar ferðasánur?

Infrared Sauna Pod notar sérhannaðan hitablásara sem myndar mjúkt, heitt loft sem dreifist jafnt um alla sánuna.

Hitaupplifunin minnir á hefðbundna finnska saunu, þar sem líkaminn hitnar smám saman í þurrum og þægilegum hita – án gufu.

Hversu heit verður Infrared Sauna Pod?

Infrared Sauna Pod getur náð allt að 85°C. Hitinn byggist upp jafnt og þægilega og er sambærilegur við hitastig í klassískri saunu.

Hvernig virkar Infrared Sauna Pod?

Sánan notar sérhannaðan hitablásara sem myndar heitt loft og dreifir því jafnt um rýmið.

Engin gufa eða vatn er notað – aðeins þurr og hreinn hiti.

Hversu langan tíma tekur að hita sánuna?

Infrared Sauna Pod nær fullum hita á um 15–20 mínútum, eftir umhverfishita.

Er Infrared Sauna Pod ætluð til notkunar inni eða úti?

Sánan er hönnuð fyrst og fremst til inninotkunar, en má einnig nota utandyra við góðar aðstæður.

Við íslenskar aðstæður er mælt með inninotkun til að tryggja lengri endingartíma.

Hversu langan tíma tekur að setja Infrared Sauna Pod upp?

Uppsetning er einföld og tekur um 20 mínútur.

Sánan er létt, flytjanleg og auðvelt að taka hana saman og geyma.

Hvernig er Infrared Sauna Pod knúin?

Infrared Sauna Pod er tengd við venjulegt rafmagn (220–240V) og þarf ekki sérstaka raflögn.

Hefur Infrared Sauna Pod mikil áhrif á rafmagnsnotkun?

Nei. Sánan notar um 1500W og hver saunalota hefur yfirleitt lítil áhrif á rafmagnsnotkun heimilisins.

Er Infrared Sauna Pod hávær í notkun?

Nei. Hljóðið er lítið og minnir helst á mjúkan viftuhljóð, sem truflar ekki slökun eða hvíld.

Úr hvaða efnum er Infrared Sauna Pod framleidd?

Infrared Sauna Pod er framleidd úr vönduðum og öruggum efnum:

  • 100% náttúruleg bómull að innan og utan
  • Einangrun úr bómull
  • Gluggi úr food-grade TPU, án skaðlegra mýkingar- og plastefna
  • Gólf úr sama örugga efni og glugginn

Hitari úr málmi með öruggum og hitaþolnum íhlutum

Hvernig dreifist hitinn í Infrared Sauna Pod?

Hönnun Infrared Sauna Pod tryggir jafna og stöðuga hitadreifingu um alla sánuna.

Eftir um 20 mínútna upphitun er hitinn sambærilegur frá toppi til botns og skapar þægilega og samfellda upplifun.

Hvaða ávinning getur regluleg sánunotkun haft?

Regluleg notkun sánu getur:

  • aukið svitamyndun
  • stutt blóðrás
  • hjálpað líkamanum að losa um spennu
  • stuðlað að slökun og betri líðan
  • dregur úr bólgum 
  • eykur endurheimt
  • losar um eiturefni og bjúg

Margir upplifa aukna ró og vellíðan sem hluta af daglegri endurhleðslu.

Hversu lengi ætti ég að vera í sánunni?

Flestum hentar 15–30 mínútna lota.

Ef þú ert vanur sánunotandi gætirðu setið lengur, en almennt næst ávinningurinn innan fyrstu 15 mínútna. Hlusta skal alltaf á líkamann.

Hverjir ættu ekki að nota Infrared Sauna Pod?

Ekki er mælt með notkun ef þú:

  • ert mjög viðkvæmur fyrir hita
  • ert með hita eða veikindi
  • ert með ástand sem hamlar svitamyndun
  • ert með gangráð eða hjartastuðtæki

Ef óvissa er til staðar er ráðlegt að leita ráða hjá heilbrigðisstarfsfólki.

Hvaða rafsegulsvið (EMF) myndar Infrared Sauna Pod?

Hitakerfið notar rafmótstöðuspólur og myndar lágt rafsegulsvið, sambærilegt við algeng heimilistæki eins og hárþurrku eða eldavél.

Infrared Sauna Pod telst vera low-EMF tæki.

Hvernig er best að þrífa Infrared Sauna Pod?

Gólfið er úr efni sem auðvelt er að þurrka af, og sætisbúnaðurinn er úr endingargóðu efni sem þolir einföld þrif.

Eftir notkun er mælt með að skilja hurðina opna til að lofta vel út.

Er hægt að kaupa hitara Infrared Sauna Pod sér?

Nei. Hitarinn er aðeins fáanlegur sem hluti af heildarkerfi Infrared Sauna Pod.

Hann er sérhannaður fyrir sánuna til að tryggja öryggi, jafna hitadreifingu og bestu upplifun.

Hvað er þurr sána?

Þurr sána myndar hita með rafmagnshitara eða ofni og er með mjög lágan raka, ólíkt gufusánum sem byggja á vatni og gufu.

Hvað gerir sána fyrir líkamann?

Sána:

  • hækkar líkamshita
  • eykur svitamyndun
  • styður blóðrás
  • hjálpar vöðvum og liðum að slaka
  • stuðlar að streitulosun og slökun
Brennir sána kaloríum?

Já, líkaminn notar orku til að kæla sig í hitanum.

Sumir geta brennt 100–200 kaloríum á klukkustund, en meginávinningurinn felst í vellíðan, slökun og endurhleðslu.